Snípakrem ;)

Lífið er yndislegt

19.09.2008 12:17:15 / sigurros

hehe er ég að blogga?

jæja gott fólk, var eitthvað að spá í að það að blogga smá.... sumarið er liðið og skólinn byrjaður aftur... er í 20(40) einingum í skólanum núna.... sem er 5(10) einingum meira en er gert ráð fyrir.. tók einnig svo mikið í vor... eikkað að flýta mér í náminu hehe eða frekar að létta á mér fyrir síðustu önnina.. :) sem er bara gott... veit reyndar ekkert svakalega mikið hvað ég á að blogga um, sumarið leið mjög hratt, þar sem maður vann eins og vitleysingur... og svo skrapp maður í 8 daga til Danmerkur líka sem var bara mjög gaman... svo í enda Júlí var svo Grundarfjarðarhelgin sem var bara endalaust skemmtileg, síðan fór maður norður um Versló og skemmti sér vel þar líka :) síðan var ég einnig fyrir norðan um daginn, fórum á mínum bíl, og fór hann í sína fyrstu ferð á malarveg, og var vegurinn alls ekki góður, þvottabretti og miklar holur... svo var veðrið ekki beisið, lá við að ég hefði farið út um framrúðuna farþega meginn þar sem ég var svo mikið að fylgjast með veginum í þokunni og myrkrinu, sérstaklega þar sem það sást bara í eina og eina stiku, og sums staðar voru svo ekki stikur :S  en við fórum semsagt norður í smalamennskur, og fannst mér ég nú nokkuð spræk  að hlaupa niður og upp eyrarhálsinn , þar sem ég hef ekki staðið í svona áður og ekki í besta forminu... svo á sunnudeginum var verið að smala á munaðarnesi, og labbaði ég veginn að Munaðarnesi, var skilin eftir ein hjá Land Cruser jeppa, beinskiptum með svaka fjárkerru aftan í, og mín neyddist til að keyra hann frá eiðinu á Munaðarneshlíðinni að fjárhúsunum á Munaðarnesi, og þar sem mín hefur ekki keyrt beinskiptan bíl í meira en ár, þá var mín smá stressuð, en nei sko þetta gekk eins og í sögu og ég mjög stolt af sjálfri mér :)
en veit ekki hvað ég á að segja meira, er bara ein heima þar sem Steini fór aftur norður að smala, og kemur ekki aftur fyrr en eftir viku...
en hef þetta gott í bili... gaman væri að fá comment um ef eikker skoðar þetta ennþá eftir langt bloggfrí..
lov ya all Rósa



» 30 hafa sagt sína skoðun

11.05.2008 13:42:04 / sigurros

tími kominn á blogg....

jæja, ætli það sé ekki kominn tími á blogg.... það er alveg hellingur búinn að ske síðan ég bloggaði síðast, bæði skemmtilegt og svo líka erfiðir hlutir. en allavega fór vestur helgina eftir páska í afmæli hjá litlu systur, og líka í fyrsta skipti vestur síðan á áramótunum, svona mikinn tíma hefur maður til að skreppa vestur, reyndar hafa mamma og pabba verið svoldið mikið í bænum, sérstaklega í byrjun apríl, þegar amma dó, það er eitt það erfiðasta sem ég hef lennt í, er ennþá að jafna mig á því að ég eigi ekki eftir að hitta hana aftur, það er eins og manni finnst eins og maður geti haft hana alltaf, en svo kemur að þessu og maður á erfitt með að sætta sig við þetta...  en þetta kemur allt.... nú er hún amma mín komin á góðan stað, og hefur það gott. En svo að allt öðru, eftir þetta allt saman , helltist yfir mann lærdómurinn, fyrst með skilum á nokkrum ritgerðum og svo þremur prófum á 6 dögum, jamms, ég semsagt var búin í prófum og öllu saman 5. mai. búin að fá útúr einu og náði því :) vona að þetta stefni í betra en á síðustu önn... en allvega svo fór ég að vinna í þrjá daga þarna 6-8 mai.... og svo á föstud. 9 mai fór ég í hálskyrtlatöku, ligg hér heima núna uppí sófa að verða geðveik á þessu, og þetta er bara þriðji dagurinn :S gæti verið svona í tvær vikur.... að meiga ekki borða hvað sem ég vil er hræðilegt.. bara vatn jógúrt, og íspinnar, og svo eikkað mjúkt, mig sem langar mest í hlölla bát, hamborgara, pizzu og steikur... en nei.. þarf að sætta mig við þetta, vá hvað ég á eftir að borða þegar ég má borða eikkað gott :) hehehe... en svo er ég að fara að vinna í nýju intersport þegar ég fer aftur til vinnu sem verður 19. mai... það verður fínt held ég bara, fínt að fá smá tilbreytingu... svo styttist alveg óðum í að við förum út.... þegar ég byrja að vinna aftur er akkurat mánuður þangað til við förum út... úff spenningurinn.. það er eins gott að maður verði með sólarvörnina á sínum stað, fyrst maður lendir í því að skaðbrenna á bringunni, með því að sitja hér úti í 2 tíma 2. mai :) hehe en svo er spurningin, hvenær kemst maður vestur næst, huga að sú helgi sem ég mun vera heila helgi fyrir vestan næst sé líklega grundarfjarðarhelgin, eins gott að ég fái henni þá skipt... svo er verið að spá í að koma aðeins við á sunnudeginum í kringum 8 júní, þegar við komum að norðan... en held þetta sé bara komin ágætis blogg færsla hjá mér... væri alveg til í kvitt :) hehe þá kannski nenni ég að vera duglegri, þar að segja þegar tími gefst, er miklu duglegri við það að hanga á facebook í bingo, póker eða eikkerju álíka þar en að skella saman bloggfærslu :) hehe
lov ya all
Rósa


» 24 hafa sagt sína skoðun

24.03.2008 19:57:27 / sigurros

smá blogg af eggertsgötu 18 :)

jæja sælt veri fólkið :) ég er rosalega lélegur bloggari, ástæða : lítið sem hægt er að blogga um, og er ekki alveg að nenna að hugsa um eikkað til að blogga um þegar ég er að læra :S en allavega ég kom heim úr sveitinni í dag, búin að vera þar í 5 daga í góðu yfirlæti, stóð mig vel í fjárhúsunum :) hehe svo fór maður í svakalega vélsleðaferð norður í Eyvindarfjörð, var þetta alveg 6 tíma ferð, og vá strengirnir í öllum líkamanum næstu daga á eftir :) fer svo vestur á næstu helgi þar sem Sólveig systir á afmæli á fimmtud. :) en hafið það gott, ætla að setja inn myndir inná myndasöfn myndir sem teknar voru fyrir norðan :)
lov ya all Rósa

» 29 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 20:01:03 / sigurros

loksins blogg

jæja gott fólk, það er sko kominn ansi langur tími síðan ég bloggaði siðast... en er þá ekki tími til að setja eikkað hérna niður... en veit samt ekki hvað..... en allavega skólinn á fullu, er í 20 ein... úff já veit ekki alveg hva ég er að spá hehe..... en nóg er að gera í skólanum, verkefnavika núna, þar sem að ég þarf að gera 2 fyrirlestra og helst byrja á einhvað af þessum 4 ritgerðum sem ég þarf að skila í lok annarrinnar... en helstu fréttirnar eru þær að ég er að fara að flytja eftir 2 vikur :)
ég og Steini erum að fara að flytja saman í paríbúð :)
en hef þetta fínt í bili.. vona að ég fái komment ef einhver skoðar ennþá.
lov ya all Rósa


» 23 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 18:40:15 / sigurros

jólin jólin jólin alls staðar

jæja ákvað að reyna að skella inn e-h bloggi hérna, þótt bloggið mitt sé nú hálft dautt.. ég er löt við að blogga og fólk skrifar ekki í skoðanir eða neitt.... en held ég hafi þetta í punktum

  •  jólagjafirnar eru allar tilbúinar, og er það mikill léttir :)
  • skilaði báðum ritgerðum mínum 7 des...
  • er búin að fá útúr 5 verkefnum af 6 alveg þokkalegar einkunnir þar
  • fyrsta háskólaprófið mitt var á mánudaginn 10 des, og var stressið alveg að fara með mig.. en gekk mér bara þónokkuð vel
  • síðan síðustu daga hef ég lært eins og mófó.. að kafna úr námsefni og endaði með að vaka í nótt til 5 að læra og vakna aftur kl.7 og fara í próf í brjáluðu veðri kl.9...
  • það gekk bara þónokkuð vel, ég skrifaði allar prófarkasíðurnar til fulls næstum því , þannig að vonandi ég hafi hitt naglann á höfuðið með útkomuna úr svörum mínum
  • síðasta prófið er á þriðjudaginn 18 des.. heimsaga og er stressið alveg að fara með mig
  • en ég á yndisslegan kærasta sem ætlar að vera svo duglegur að hjálpa mér að læra undir það próf :)
  • ekki nema 10 dagar í jólin :)
  • hlakka til að komast heim...
  • spurning hvenær ég fer heim, fer allt eftir hvort ég fái einhvað að vinna
  • eikkað vesen þar á Gunna, frekar pirruð á því þar sem ég talaði við hann snemma í nóv um þetta og þá var allt gott
  • en hef þetta gott í bili, hafið það gott yfir hátíðarnar, og endilega kvittið fyrir :)´

Kveð að sinni úr prófstressinu í Reykjavík

lov ya all Rósa


» 27 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 13:06:49 / sigurros

blogg......

jæja.. er að spá í að blogga smá hérna , bara að þykjast vera dugleg, áður en maður fer uppá hlöðu að klára síðasta verkefnið, og þá er það bara eftir að klára ritgerðirnar.... alveg nóg að gera hjá manni..... það sem er að frétta af manni, er að ég er búin að skreyta hjá mér :) svo dugleg.... keypti smá skraut í síðustu viku til að gera smá huggulegt hjá mér.... svo erum við Steini eiginlega búin með allar jólagjafirnar... og er maður bara að spá í að pakka þeim inn núna og senda með mömmu og þeim vestur á fimmtud. en þau eru að koma hingað líklega á miðvikudaginn og þá ætlum við víst öll saman út að borða :) það verður gaman... svo eru mamma hans steina og pálína og fjölskylda að koma í dag eða morgun, og er planið að hitta þau annað kvöld, þar sem Steini er að vinna í kvöld.. og ætla ég að nota tækifærið og fara til Bimbu, og við ætlum að baka myndapipakökur :) það verður bara gaman :) svo á síðasta fimmutd. eignuðust Jensína systir Steina og Guðni, þessa líka flottu prinsessu.... kíktum á þau á laugd. :) og svo kíkjum við aftur semsagt á morgun þegar hin verða komin líka :) alveg nóg að gera hjá manni þessa dagana.. um helgina var farið í innflutningspartý til Bimbu og Runna og var það brjálað stuð... svo var kíkt á móti sól á Players. og fyndna var að maður hitti fullt af fólki þar sem maður var ekki búinn að hitta lengi hehe Grundara :) þetta var bara fínt, svo reyndum við að fara í eikkerjar búðir á laugd. og náðum við að versla 3 jólagjafir þá... en það var bara brjálað í búðum, öfunda ekki fólk sem þarf að fara um helgar að versla..... svo var bara leti á laugd. eftir að við kíktum á prinsessuna... og svo á sunnud. kíktum við á Bimbu og Runna um 4, þar sem Rúna og Kalla voru að kíkja í heimsókn til þeirra, og gaman að hitta þær... síðan elduðum við þetta dýrindis fondu um kvöldið.... :) en held þetta sé gott í bili....

lov ya all Rósa


» 21 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 15:37:47 / sigurros

jæja loksins blogg :)

jæja held það sé kominn ágætur tími fyrir blogg..... hef verið alltof löt við þetta... enda ekkert merkilegt að skrifa um... maður gerir ekkert annað en skólinn vinna og svo djamm þar inn á milli..... en allavega... ekki nema 3 vikur eftir af skólanum og svo prófin... og þá mun maður ekki láta sjá sig neitt held ég bara.. liggja bara og strita yfir bókunum.... á ennþá eftir 2 verkefni og 2 ritgerðir.... þannig maður verður að vinna í því núna.... síðan ég bloggaði síðast , er ég búin að halda innflutningspartý, annað partý, afmælispartý, og fara í staffapartý.... eins og ég segi , ágætt djamm.... síðan er ég bara einu sinni búin að kíkja vestur.... er búin að eignast litla frænku, sem er algjört yndi :) er búið að skíra hana Sólveig Stefanía, og btw. hún fæddist einnig á afmælisdaginn hans pabba :) rétt náði því hehe :) en ég veit ekki hva ég á ettir að blogga mikið í viðbót fram að jólum.... ég veit ekkert hva ég á reyndar að blogga um.... :S hmmm ekki skemmtilegt lesefni það sem komið er hehe :) er með kökur í ofninum núna, þar sem mín á nú afmæli á morgun :) fínt að eiga eitt stykki köku :) hehe en ég fer líklegast næst bara vestur 21 des. og þá komin í jólafrí... prófin hjá mér eru 10, 14, og 18 des, fínt 4 dagar á milli :) svo vinn ég 18, 19 , 20 og 21 :) en held þetta sé bara ágætt .... hafið það gott :) og endilega skrifið í skoðanir ef einhver skoðar þetta ennþá :) hehe

lov ya all Rósa


» 27 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 14:28:59 / sigurros

sagnfræðinemi og Reykjavíkurbúi.. :)

jæja það er kominn alveg mánuður síðan ég bloggaði síðast.. vá hva maður er greinilega latur :S en allavega það er mikið búið að ske hjá manni síðan.... er flutt t.d. í bæinn :) og er búin að búa hér í bænum í mánuð... byrjuð í skólanum og byrjuð að vinna líka.. nóg að gera sko.... búin að kynnast fullt af skemmtilegu fólki á nýnemadjamminu og svo í ferðinni í sögufélagið.. hehehe mæli með að þið kíkið á þetta .... www.hi.is/nem/frodi.. þar er sko svaka mynd á forsíðunni hehe :) semsagt þetta er nemendafélagið hjá Fróða og eru alveg slatti af myndum þar inni :) skemmtilegt að skoða.. :) svo voru stelpurnar að plata mig inná facebook, þannig að ég er víst komin þar inn líka.. en kann samt EKKERT á það hehe allt er nú til... veit samt ekkert hva ég get sagt hérna.. fannst bara tími á blogg hehe :) er búið að vera rukka mig um það :) svo er alltaf verið að reyna að finna tíma fyrir innflutningspartý... spurning hvenær sá tími finnst :) en hef þetta gott í bili... lov ya all :) og segið mér eikkað sniðugt í skoðanir :)

Rósa


» 25 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 19:47:30 / sigurros

loksins blogg

jæja... finnst vera kominn tími á að ég bloggi... en það er ekkert skrítið að ég hef ekkert bloggað nóg búið að vera að gera og lítið internetsamband... en ætla að skella bara punktum held það verði auðveldara :)

  • hætti að vinna og fór í frí 26 júlí :) vá bara notalegt :)
  • grundafjarðardagarnir voru frábærir... :) skemmti mér rosalega vel, Steini kom til mín á fimmtudeginum og síðan komu Haddi Binni og Golli á föstudeginum og gistu þeir bara í tjaldi hérna bakvið hjá okkur :) og svo var húsið hér einnig fullt og fellihýsi og húsbíll og allt.. semsagt allar systur mömmu mættu á svæðið og var líka þetta svakalega góða grill á laugardeginum :)
  • strax á mánudeginum eftir grundódaga var farið norður á strandir þar sem ég var í næstum 2 vikur :)
  • prufaði í fyrsta skipti að eyða verslunnarmannahelgi fyrir norðan... og var það bara helvíti fínt fyrir utan ömurlegan kall á skemmtara og söngkonu sem héldu ballinu uppi (eða áttu allavega að gera það :)) og ekki alveg 2500 kr virði...
  • en svo á fimmtudaginn síðasta var ferðinni heitið á akureyri... þar var margt skemmtilegt brallað ásamt tengdamömmu, Pöllu systur Steina, Gunna kallinum hennar og Anítu Mjöll litlu prinsessunni... :)
  • Fórum að skoða Goðafoss, Mývatn, Dimmuborgir, safnið á Reykjum(reyndar á leiðinni norður :)) safnið að Iðufelli, og svo var kíkt á mömmu og pabba Golla, kíkt á fiskidaginn mikla og á Landbúnaðar og Handverkssýninguna á Hrafnagili :)
  • síðan á sunnudeginum var brunað snemma af stað vestur og svo næstum því beint suður.. þar sem ferðinni var heitið í að kaupa mér nýjan bíl....
  • og eftir mikla leit keypti ég mér geggjað flotta toyotu corollu, minni útgáfuna...2004 árg, sjálfskipta , hvíta og keyrða 36 þús :) bara pæjubíll og þægilegur bíll...
  • síðan er ég bara á fullu að pakka núna, þar sem þeir í Intersport vilja fá mig á mánud. í vinnu.... þannig það er virkilega nóg að gera.....
  • þannig að mín flytur bara suður núna um helgina.. en fæ ekki íbúðina fyrr en 1 sept.. þannig mín mun búa hjá Stínu og Didda þangað til...
  • en svo er ferðinni líka haldið norður á strandir núna á föstudaginn 24 ágúst.. þar sem við erum að fara að sýna Runna svæðið... skoða Þórðarhelli, Hellisvík, Kistuvog, Eyri og ýmislegt fleira :)
  • en held þetta sé nóg í bili.. veit ekki hvenær ég get bloggað næst.. ætli það verði ekki bara þegar ég er flutt :S en endilega kvitta í skoðanir og svonna :) finnst það svo gaman

lov ya all Rósa

 


» 23 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 22:08:02 / sigurros

3 vinnudagar eftir og 3 dagar í grundódaga :)

smá blogg frá mér.. allavega lítið sem ég get sagt.. 3 vinnudagar eftir.. samt langir vinnudagar... en vonandi verður það fljótt að líða... :) en ég fór semsagt á Drangsnes um helgina og skemmti ég mér alveg þokkalega vel bara... en brá svoldið hva allt var dýrt þarna hehe .... t.d. á ballið kostaði 2500 kr.. en svo er sama hljómsveit hér á grundódögum og kostar 1500 á það :) en þetta var samt alveg þess virði sko .. snilldar hljómsveit og hlakkar mig strax til að fara aftur á ball með þeim... svo var þetta líka smá öðruvísi ball en ég er vön.. semsagt 16 ára byob ball :) svo er bara vika í að ég fari norður... that will be nice :) ohh já... hlakka svo til sko.... en nenni lítið að blogga meira... hlakka til að fá Bimbu heim frá Portúgal á miðvikudaginn.. en samt ætla ég að vera í felum þar sem ég er bara eins og snjór við hlið hennar býst ég við, þar sem hún var orðin þónokkuð dökk áður en hún fór út ... :) en set hér smá inn sem ég fann á síðu :) frekar fyndið .. prufið endilega :) og yrði gaman að sjá það í skoðunum :)

S: easy to fall in love with

I: Great in bed

G: you never let people tell you what to do

U: you really like to chill

R: Fuckin Crazy

R: Fuckin Crazy

O: awesome kisser

S: Easy to fall in love with

.....................................

A : You like to drink.
B : You like people.
C : You are really silly.
D : One in a million.
E : Great in bed.
F : You are dead sexy.
G : You never let people tell you what to do.
H : You are Quirky.
I : Great in bed.
J : People Adore you
K : You're wild and crazy.
L : Unbelievably great in bed.
M : Best kisser ever.
N : You like to drink.
O : Awesome kisser.
P : You are popular with all types of people.
Q : You are a hypocrite.
R : Fuckin crazy.
S : Easy to fall in love with.
T : You're loyal to those you love.
U : You really like to chill.
V : You are not judgemental.
W : You are very broad minded.
X : You never let people tell you what to do.
Y : Best boy/girlfriend any one can ask for.
Z : Always ready.

lov ya all Rósa


» 23 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 20:53:32 / sigurros

8 vinnudagar eftir :)

jæja þá er kominn mánudagur og ég er í fríi þar sem ég vann helgina. síðustu helgina mína og var alveg geðveiki að gera... ekkert smá sko.. enda veðrið hér á nesinu alveg æðislegt og öll tjaldstæði full í grundó og hólminum allavega....  og viti menn ég á ekki eftir nema 8 vinnudaga eftir :) 4 stutta og 4 langa...
en allavega fréttir.... ég og Anna Þóra fengum inn á stúdentagarðana í Rvk ... fengum við íbúð að Eggertsgötu 34 , íbúð 302 .... þannig ég og Steini verðum bara nágrannar þar sem hann er í 32 :) hehe bara fyndið og skemmtileg tilviljun :)
en það er lítið sem ég hef annars að segja... :S
jú er að fara á Drangsnes á föstudaginn býst ég við.. eða hvort ég fari bara norður á föstudaginn Steini ekki alveg búinn að ákveða sig hehe .. :) hlakka rosalega til :) 
og svo helgina eftir eru bara grundódagar :) og þá verður náttla svaka stuð :)
og svo eru það bara strandirnar og get ég bara ekki beðið .... það verður svo rosalega notalegt...
en svonna þar sem að sólin skín svo þessa dagana.. og svo er náttla gulur og sólin hverfaliturinn minn og .. það er náttla bara flottast :) þessvegna fylgir ein svona sæt sól með :)
Lov ya all Rósa

» 16 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 20:40:51 / sigurros

ofurbloggarinn bloggar :) hehe

 

Jæja þar sem ég er svo mikill ofurbloggari þá er ég að spá í að skella inn einu rosalegu bloggi J En allavega þá er mikið búið að ske þannig lagað frá 11 júní get ég sagt ykkur J það er náttla vinnan , svo var skellt sér í bæinn helgina 15-17 júní, þar sem mér var boðið í útskrift til Dagnýar þar sem hún var að útskrifast sem hjúkka J og Steina var boðið í brúðkaup, þannig við hittumst í bænum þá helgina J leigðum bara verkalýðsíbúðina, virkilega nice J ég kíkti einnig á Hildi og svo Guggu frænku þessa helgi J síðan eftir það er bara búið að vera að vinna þangað til núna fyrstu helgina í júlí, þá kom Steini til mín á föstudeginu, eiginlega á sama tíma og ég , og vorum við bara ein heima, þar sem öll mín familíja var farin í útilegu uppí fossatún J við grilluðum geðveikt góðan mat :) síðan kíktum við bara í pottinn með bjór, þar sem veðrið var alveg hreint æðislegt.. og við náðum sko að chilla í pottinum, í hátt í 4-5 tíma hehe J bara að sötra bjór, spjalla og hlusta á tónlist J svonna getur tíminn greinilega flogið frá manni þegar veðrið er yndislegt.. síðan vöknuðum við um 10 leytið , því stefnan var að skreppa í Fossatún að hitta familíjuna og alla sem voru með í útilegu og semsagt gista eina nótt í nýja fellihýsinu hjá mömmu og pabba J en þar sem ég lofaði Steina kvöldið áður að klippa hann , þá var byrjað á því... eða öllu heldur raka hárið J hehe það gekk alveg mjög vel , þangað til allt í einu heyrðist úps.. en sem betur fer var hægt að redda því þannig að það sást ekki mikið... það var semsagt ekki í miðjum hausnum á honum sem ég gleymdi því að ég hafði tekið kambinn af vélinni og var með hana bara sem rakvél :S en eins og ég segi þá reddaðist þetta allt J svo var brunað í Borgafjörðinn J í blíðskaparveðri J og þar hittum við familíjuna mína, Unni og Brynju , Stínu og Didda.. svo seinna um daginn bættust Kalla og fjölskylda og Eyþór og Harpa í hópinn J mjög gaman... .kíktum í sund, á búvélasafnið og svo um kvöldið var það bjór og spilað á gítar og sungið J svo aftur var það bara vinna hehe J en svo núna um síðustu helgi kíkti ég í sveitina , vá það var alveg yndislegt.. var reyndar ekki alveg á því fyrst að þora að keyra þessa leið :S langt síðan ég keyrði malaveg :S og hva þá svona malaveg... en ég keyrði nú samt alla leiðina norður.. fórum meira að segja tröllatunguheiðina.. og vá upp hana láum við Bimba í hláturskasti.. frekar fyndið sko.. J en þegar við keyrðum út kjörvogshlíðina, mætti okkur þessi æðislega þoka (not) og var hún til staðar alla helgina.. en veðrið var samt mjög fínt þrátt fyrir það... kíktum í sund og kaupfélagið sem maður sko sleppir ekki þegar maður mætir norður hehe J síðan var ég voða dugleg að skreppa í göngutúr, labbaði semsagt upp að fossum eða eikkað álíka með Steina, á heimalandinu hans J mjög notalegt J og sá heimalingana og svonna J
svo í gær , tókum við röltið á Munaðarnesi áður en við fórum J vá hva ég hefði getað verið þarna mikið lengur ... var alveg að fíla mig í botn J njóta nátturunnar en það styttist sem betur fer í að ég fari aftur og þá verð ég sko 2 vikur J það verður æði J og já má ekki gleyma, audda var tekið Singstar um kvöldið J hehehe J þar sem við Bimba unnum Bæjarliðið J hehe segi svonna J smá djókur... en já má svo ekki gleyma að ég er nú komin með íbúð á Keflavíkur varnarsvæðinu J og er á biðlista á hina garðana.. held mér þar þangað til ég fæ þar inn, ætli maður verði ekki að byrja þá á varnarsvæðinu.. afþví að manni finnst svo gaman að flytja en mér er virkilega farið að hlakka til hætta að vinna og komast í frí og svo bara að flytja.. þótt mig hlakki ekkert til að fara frá foreldrunum og litlu systur :S  en óðum styttist í Grundó dagana og vá það verður sko brjálað stuð .... og svo allir viti það þá eru GULIR BESTIR J

 og já... það væri gaman að fá skoðanir um hverjir ætla að mæta á grundó daga.. og bara skoðanir yfir höfuð J Og já held að þetta sé nú bara orðin ágætis blogg hjá mér.. efast um að eikker nenni að lesa hehe J en já lennti semsagt í því í dag á leiðinni heim úr vinnunni að það hvell sprakk á bílnum mínum og ég massi var bara enga stund að græja það J Lov ya all Rósa

 


» 31 hafa sagt sína skoðun

05.07.2007 17:52:33 / sigurros

sveitin :)

ég er að fara í sveitina um helgina :) vá hlakka svo til.. komast í afslöppun í kyrrðinni :) blogga svo gríðastóra færslu um það sem er búið að ske frá 11 júní hehe :) veit er löt að blogga :)

LOV YA ALL Rósa


» 22 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 21:23:06 / sigurros

mánudagurinn 11 júní

hæhæ allir.. já það er sko kominn mánudagurinn 11 júní og er það bara æðislegt.. styttist alveg óðum í að ég hætti að vinna og í að ég flytji suður.. kannski ekki nema 2 mán í það.. vá tíminn ekkert smá fljótur að líða og mikið búið að ske á þessum tíma sem ég hef ekki nennt að blogga hehe set það niður í smá punkta.

  • sjómannadagshelgin var frábær... byrjaði á að ég kom úr vinnu á föstud. kl. hálf 9 um kvöldið, þá var steini minn kominn og vá hva var gaman að sjá hann vorum ekki búin að hittast í 3 vikur... .og síðan var grill og amma og afi voru í mat :) síðan var bara drukkið og skellt sér á alveg frábært ball þar sem að um 270 manns borguðu sig inn á minnir mig.. og veðrið um nóttina náttla frábært :) síðan voru mjög fín skemmtiatriði og keppnir niðrá bryggju á laugd. svo náttla snilldar fótboltaleikur, frábært grill... og bara ball á eftir.. og mikið drukkið og mikið drukkið.. hehe
  • síðan var síðasta vika alveg ótrúlega fljót að líða.. var að vinna til 5 mjög þægilegt.. :) og svo átti ég vinnuhelgi..
  • á laugd. mætti ég of seint í fjölskyldugrill hjá ömmu og afa í tilefni afmæla þeirra.. og var það samt alveg frábært :)
  • hehe afi var farin að biðja um barnabarnabörn.. hehe er maður orðinn svo gamall :) að það sé farið að krefjast þess frá manni :) hehehe bara gaman að því :)
  • svo er ég búin að vera í fríi í dag... og sippaði áðan með Bimbu.. hélt ég myndi deyja.. en ég sippaði 400 sinnum.. eftir fyrstu 100 hélt ég væri að deyja.. og svo eftir 200 var ég búin að gefast upp.. en nei náði 100 í viðbót og ætlaði að hætta þá en nei tók 100 í viðbót.. það verður gaman að sjá hvernig skrokkurinn verður á morgun hehe :) örugglega verð ég eins og spítukall hehe
  • svo um næstu helgi er ég að fara í bæinn .. þar mun ég hitta Steina minn og fullt af fleira skemmtilegt fólk :) það verður bara gaman :)
  • svo er það víst í síðasta lagi á föstudaginn sem ég og Anna fáum að vita hvort við fáum íbúð á keflavíkursvæðinu :) og svo sóttum við stöllur líka um á stúdentagörðunum.. en fáum víst ekki að vita það fyrr en í júlí :S
  • en held ég hafi þetta fínt í bili.. ekki of langt til að fólk nenni að lesa.. og koma svo fólk.. kvitta í skoðanir ..

lov ya all Rósa


» 23 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 15:53:37 / sigurros

úff blogg , þarf þess hehe

jæja er að spá í að skella inn einu bloggi... en er að spá í að skella því bara inn í punktum.. nenni ekki að skrifa of mikið...

  • skrapp í bæinn á föstudaginn eftir vinnu með mömmu... fórum í smá svonna konuferð :)
  • ég gisti hjá Bimbu en mamma hjá Köllu.. byruðum strax kl. 10 um morguninn að fara í búðir og byrjuðum á Tengi, svo niðrí Síðumúla og Ármúla og svo í skeifuna... svo var farið í kringluna, eftir það í Byko, og svo í eikkerjar búðir með Köllu og mömmu... svo var endað í Smáralindinni, eftir smá stopp í rúmfó, sem er náttla ómissandi hehe.. og tíminn í smáralindinni var of fljótur að líða.. en ég náði að kaupa mér 3 skó, eina puma, ein stígvél og eina sumarskó :) síðan 2 boli, og einn kjól.. svo keypti ég mér einn jakka...
  • síðan var farið í mat til Köllu og svo brunað vestur, og vorum við komnar heim um 11 um kvöldið..
  • þá var skellt sér í pottinn og sötraður einn bjór fyrir svefninn..
  • sunnudaginn var maður nú orðinn ansi slappur af kvefi og náði ekki að dröslast á lappir fyrr en um hálf 3 :S
  • en ég gerði samt það sem ég var búin að ákveða og þurfti að gera... þreif bílinn minn, fór í göngutúr, skipti á rúminu mínu og kíkti ísrúnt, og svo smá tan í pottinum...
  • síðan í gær var ég talsvert slöpp af þessu kvefi, og toldi í vinnunni til hálf 5 og fékk þá að fara heim..
  • og núna semsagt ligg ég að deyja hérna heima.. en er samt orðin smá skárri og dröslast í vinnuna á morgun..
  • svo um helgina er náttla brilliant stuð í gangi :) tvö böll, fótboltaleikur, grill og bara stuð og náttla djamm :) þess vegna er eins gott að ég verði skárri af þessu ógeði því annars verð ég brjáluð..
  • svo kemur Steini minn á föstudaginn.. það verður frábært:)

held þetta sé fínt í bili... man ekkert meira... munið skoðanir... :)

lov ya all Rósa


» 20 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
† Reginn Þór †
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti